Fara í efni

Ósk um rekstrarleyfi gistingar fyrir Stóragarð 15, Yggla leigufélag

Málsnúmer 202409046

Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð - 197. fundur - 24.09.2024

Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra óskar umsagnar Norðurþings um rekstrarleyfi til sölu gistingar (flokkur II) í fjórum íbúðum að Stóragarði 15 á Húsavík.
Með vísan til nýlegra breytinga á 3. gr. laga nr. 85/2007 telur skipulags- og framkvæmdaráð nú óheimilt að veita ný leyfi til rekstrarleyfisskyldrar gististarfsemi í íbúðarhúsi innan þéttbýlis. Ráðið leggst því gegn veitingu leyfisins.