Yggla leigufélag ehf. óskar eftir að breyta skráningu Stóragarðs 15 í fasteignaskrá
Málsnúmer 202409124
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 198. fundur - 01.10.2024
Yggla leigufélag ehf óskar eftir að húseignin að Stóragarði 15 verði öll skráð sem gistiheimili. Í húsinu eru nú skráðar fjórar íbúðir.
Skv. gildandi aðalskipulagi er Stórigarður 15 á verslunar- og þjónustusvæði. Ráðið telur jafnframt að húsnæðið fullnægi kröfum til gistiheimilis þegar framkvæmdum skv. samþykktum teikningum er lokið. Ráðið samþykkir því breytta skráningu húsnæðisins.