Fara í efni

Veiðifélag Mýrarkvíslar óskar eftir leyfi fyrir viðbyggingu á veiðihúsi við Mýrarkvísl

Málsnúmer 202410080

Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð - 203. fundur - 12.11.2024

Veiðifélag Mýrarkvíslar óskar eftir leyfi til að byggja sólskála við veiðihúsið við Mýrarkvísl. Stærð viðbyggingar er 32,7 m² og 103,2 m3. Teikningar eru unnar af Erni Sigurðssyni byggingartæknifræðingi hjá Norðurvík. Meðfylgjandi umsókn er skriflegt samþykki eiganda aðliggjandi jarðar og næstu nágranna fyrir uppbyggingunni.
Skipulags- og framkvæmdaráð telur fyrirliggjandi grenndarkynningu fullnægjandi og heimilar byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi fyrir sólskálanum þegar fullnægjandi gögn þar að lútandi hafa borist.