Félagsþjónusta
Hlutverk félagsþjónustunnar er meðal annars að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð á grundvelli samhjálpar. Þjónustan byggir á því að koma til móts við þarfir þeirra sem eftir þjónustunni leita. Markmið félagslegrar ráðgjafar er að hjálpa fólki til sjálfshjálpar þannig að sérhver einstaklingur geti sem best notið sín í samfélaginu.
Sveitarfélögin Norðurþing, Skútustaðahreppur, Þingeyjarsveit, Tjörneshreppur, Svalbarðshreppur og Langanesbyggð mynda saman eitt félagsþjónustusvæði.
- Félagsþjónusta Norðurþings veitir íbúum allra sveitarfélaganna þjónustu samkvæmt samningi þar um.
- Hlutverk félagsþjónustunnar almennt er að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi íbúanna í sveitarfélögunum á grundvelli samhjálpar eins og kveðið er á um í lögum nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga.
- Félagsþjónusta Norðurþings leitast við að tryggja íbúum þjónustusvæðisins félagslegt öryggi með heildstæðri félagslegri þjónustu.
- Félagsþjónustunni er ætlað að sinna verkefnum sveitarfélaganna samkvæmt lögum, til dæmis lög nr. 40/1991um félagsþjónustu sveitarfélaga, barnaverndarlög nr.80/2002, lög um grunnskóla nr.66/1995, lög um leikskóla nr.78/1994 og lög um málefni fatlaðra nr.59/1992. Einnig er unnið samkvæmt öðrum lögum svo sem ættleiðingalögum og barnalögum nr.76/2003.
- Á Félagsþjónustunni starfar sérmenntað starfsfólk og er það bundið þagnarskyldu um málefni einstaklinga sem þangað leita. Undantekningu frá þagnarskyldu má einungis gera samkvæmt lagaboði svo sem ef barni er hætta búin. Starfsmenn fara í reglulegar ferðir um sýslurnar til að færa þjónustuna nær íbúum þeirra.
Fjölskylduráð ber ábyrgð á almennum málum og stefnumótun í málaflokkum innan félagsþjónustu.
Barnaverndarnefnd Þingeyinga er fimm manna nefnd skipuð af Héraðsnefnd. Nefndin ber formlega ábyrgð á meðferð allra einstaklingsmála en starfsmenn félagsþjónustu Norðurþings sinna daglegri meðferð og afgreiðslu.
Hægt er að panta tíma hjá starfsfólki félagsþjónustunnar í síma 464 6100.