Tilkynning frá Húsavíkurhöfn
Tilkynning frá Húsavíkurhöfn
Von er á norðan áhlaupi næstu daga. Í ljósi þess hefur verið ákveðið að vinna við skip sem væntanlegt er í hádeginu í dag, fram eftir kvöldi/nótt þar til löndun verður lokið. Möguleiki er á að eitthvert ónæði hljótist af því (hávaði) utan hefðbundins tíma. Er þetta gert til að koma skipinu áfram áður en norðan áhlaupið hefst. Við vonum að ónæði verði sem minnst.
Virðingarfyllst, fyrir hönd hafna Norðurþing. Bergur Elías Ágústsson.