Fara í efni

110 ára afmæli Borgarhólsskóla á Húsavík

Miðvikudaginn 22. nóvember verður haldið upp á 110 ára afmæli Borgarhólsskóla og er bæjarbúum af þvi tilefni boðið að heimsækja skólann og taka þátt í skólastarfinu.   1896 reistu Húsvíkingar fyrst skólahús og Barnaskóli Húsavíkur, síðar Borgarhólsskóli, varð til.  
Miðvikudaginn 22. nóvember verður haldið upp á 110 ára afmæli Borgarhólsskóla og er bæjarbúum af þvi tilefni boðið að heimsækja skólann og taka þátt í skólastarfinu.
 
1896 reistu Húsvíkingar fyrst skólahús og Barnaskóli Húsavíkur, síðar Borgarhólsskóli, varð til.
 
Í tilefni dagsins munu kennarar Borgarhólsskóla og Tónlistarskóla Húsavíkur  kenna fyrir opnum tjöldum og nemendur sýna afrakstur þemavinnu í skólastofum og á göngum.  
 
Þrjár stuttar samkomur verða haldnar  í sal skólans á afmælisdaginn:
 kl. 9:00 fyrir miðstig,
 kl. 10:00 fyrir yngsta stig
 kl. 11:00 fyrir unglingastig.
 
Gestir eru velkomnir í heimsókn í skólann frá kl. 8:15 – 12:00   og verður heitt á könnunni. 
 
Skólastjóri, starfsfólk og nemendur Borgarhólsskóla.

Saga skólans

Árið 1896 var fyrst byggt sérstakt hús fyrir barnafræðslu á Húsavík, áður hafði sú fræðsla farið víða fram í hreppnum t.d. í prestbústaðnum og kaupmannshúsinu. Í þessu húsi var einnig þinghús hreppsins. Unglingaskóli tók til starfa um 1906. Nýtt skólahús var svo reist við Borgarhól sumarið 1908 og tekið í notkun í nóvember sama ár. Fluttu barnaskólinn og unglingaskólinn í nýja húsnæðið. (Þetta skólahús stendur nú við Stóragarð 6 og er nýtt sem íbúðarhús). Á þessum árum voru nemendur Barna-skólans rúmlega sextíu og kennt í þremur bekkjardeildum. Fljótlega fór að gæta þrengsla og fór ýmis kennsla fram annars staðar í bænum. Eins og áður hefur komið fram var Unglingaskólinn í sama húsnæði, tveir skólar voru því undir sama þaki og störfuðu sömu kennarar oft í báðum skólum.

Gagnfræðaskóli Húsavíkur hóf starfsemi 1945 og tók við af unglingaskólanum. Skólinn var fyrst í gistihúsinu Garðarshólma með tvær stofur á leigu. Nemendur voru 36 í tveimur bekkjardeildum. Árið 1945 keypti Húsavíkurhreppur Garðarshólma og var húsið alfarið nýtt undir Gagnfræðaskólann. (Hús þetta stendur nú við Stóragarð 4 og er íbúðarhús). Skólaárið 1950-51 voru 130 nemendur í sex bekkjardeildum í Barnaskóla Húsavíkur og fjölgaði stöðugt næstu árin.

Árið 1960 var nýtt skólahús tekið í notkun og fluttu bæði Barna- og Gagnfræða-skólinn í húsnæðið. Barnaskólinn notaði sex skólastofur en Gagnfræðaskólinn fjórar. Kennarastofa og verknámsaðstaða voru samnýttar. Á árunum 1972-1974 flutti Gagnfræðaskólinn í nýtt húsnæði sérstaklega byggt undir starfsemi hans rétt við Barnaskólann. (Núverandi húsnæði Framhaldsskólans á Húsavík).

Hafist var handa við að byggja við Barnaskólann árið 1990, fyrst var byggð
stjórnunarálma með aðstöðu fyrir kennara, bókasafn skólans, Tónlistarskóla Húsavíkur og fleira. Í öðrum áfanga voru meðal annars byggðar almennar kennslustofur og raungreinastofur. Þessu verki lauk árið 1998.

Árið 1992 fékk Barnaskóli Húsavíkur nafnið Borgarhólsskóli og varð smám saman að heildstæðum grunnskóla með nemendur í 1.– 10. bekk. Nemendur 10. bekkjar voru fyrst brautskráðir frá Borgarhólsskóla vorið 1994.