Fara í efni

112 dagurinn þann 11. febrúar

112-dagurinn verður haldinn um allt land í dag 11. febrúar.

Áhersla dagsins í ár er á ofbeldi og viðbrögð við því og jafnframt að miðla fræðslu um rétt samskipti við neyðarverði 112, enda eru neyðarverðir þeir fyrstu sem samband fæst við þegar hringt er í 112 og þar með mjög mikilvægir hlekkir í viðbragðskeðjunni.

Í tilefni dagsins miðlar Neyðarlínan fræðsluefni á gagnvirku myndbandi um rétt og skilvirk samskipti við neyðarverði sem eru þeir sem svara í símann þegar hringt er í neyðarnúmerið 112 og þess vegna mikilvægustu hlekkirnir í viðbragðinu.
Myndbandið verður sett í loftið að lokinni útsendingu og má fylgjast með því hér
Vegna sóttvarnartakmarkana verður dagskrá 112 dagsins streymt á samfélagsmiðlum, á heimasíðu Neyðarlínunnar 112.is og á heimasíðum samstarfsaðilanna, en dagskráin hefst kl. 12:00 með því að Þórhallur Ólafsson framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar og Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra flytja stutt ávörp. Síðan verða börnum í 4. bekk grunnskóla afhent verðlaun í eldvarnargetraun Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Rauði krossinn útnefnir Skyndihjálparmann ársins og loks verður kynnt gagnvirkt myndband þar sem miðlað er fræðslu um rétt samskipti við neyðarvörð, þegar hringt er í neyðarnúmerið 112. Kynnir á viðburðinum er Jana M. Guðmundsdóttir hjá Neyðarlínunni.

Samstarfsaðilar Neyðarlínunnar vegna 112 dagsins eru Barnaverndarstofa, Embætti landlæknis, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Húsnæðis og mannvirkjastofnun, Landhelgisgæslan, Landspítalinn, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Rauði krossinn, Ríkislögreglustjórinn, Slysavarnarfrélagið Landsbjörg, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Vegagerðin og samstarfsaðilar um land allt.

Haldið er uppá 112 daginn víða í Norðurþingi. Björgunarsveitir, lögregla og slökkvilið heimsækir leikskólann Grænuvelli og sýnir þeim faratæki sem notuð eru til björgunar. Þessi dagur vekur mikla lukku meðal barnanna enda er það ekki á hverjum degi sem þau fá skoða slökkviliðsbíla og björgunarbáta.