24 tímar af raunveruleika á Gamla-Bauk - Húsavík á heimskortinu
Al Gore fylgir nú eftir kvikmyndinni An Inconvenient Truth með nýrri margmiðlunarsýningu sem sýnd verður um allan heim á 24 klukkustundum.
Þurrkar, flóð, hitabylgjur, skordýraplágur, skógareldar, hækkun sjávar – við sjáum raunverulegar afleiðingar loftslagsbreytinga á hverjum degi. Norræna Húsið og Garðarshólmur, samstarfsaðili Stofnunar Sæmundar fróða og Háskóla Íslands sjá um frumsýningu sýningarinnar á Íslandi.Al Gore hafði samband við Ólaf Ragnar Grímsson, forseta lýðveldisins, til að fá Ísland til þess að taka þátt í
þessu verkefni og úthlutaði forsetinn verkefninu til Garðarshólms og Norræna Hússins. Sýningin fer fram í Norræna húsinu og
í húsi Gamla Bauks á Húsavík 15. Sept kl.19.00 en er einnig send beint út frá vef verkefnisins http://www.climaterealityproject.org/.
Á Húsavík opnar húsið kl. 18:00 og verða léttar veitingar á boðstólum í boði Gamla Bauks. Dagskráin hefst svo kl. 19:00
þegar Embla Eir Oddsdóttir, MA, verkefnisstjóri hjá Stofnun Vilhjálms Stefánssonar býður gesti velkomna áður en Sigurður Eyberg, MS,
verkefnisstjóri Garðarshólms flytur íslenska útgáfu af sýningu Gore’s. Viðburðinum lýkur með pallborðsumræðum
þar sem Brynhildur Davíðsdóttir, PhD, dósent við Háskóla Íslands, Halldór Björnsson, PhD, veðurfræðingur og
Þröstur Eysteinsson, PhD, sviðsstjóri þjóðskóganna sitja fyrir svörum gesta. Dagskrá lýkur kl. 20.30
Norræna húsið opnar kl. 18.30 þar sem Guðmundur Ingi Guðbrandsson nýráðin framkvæmdastjóri Landverndar Íslands tekur á
móti fólki. Sýnt verður beint frá fyrirlestri á Húsavík og umræðum sérfræðinga um hvernig málið snýr
að Íslandi. Almennar umræður verða svo í lokin. Dagskrá lýkur 20.30
Nánar um verkefnið
24 Hours of Reality hefst í Mexico City og heldur svo sem leið liggur í vestur í kringum hnattkringluna og
sýnir í beinni útsendingu svipmyndir af áhrifum breytinga á loftslagi með sérstökum áherslum
heimamanna allt frá Kotzebue til London, frá Jakarta til New York – og til Húsavíkur. Allir viðburðirnir verða kvikmyndaðir og sýndir
beint á netinu en einn viðburður fer fram í hverju tímabelti klukkan 19:00 að staðartíma og mun Al Gore sjálfur flytja síðasta
fyrirlesturinn í New York.
Með því að beina kastljósinu að breytingum á loftslagi í heilan sólarhring er ætlunin að búa til hnattræna hreyfingu og
hvetja til aðgerða til lausna á vandanum hina 364 daga ársins. Á hverjum stað fyrir sig mun athyglinni beint að verkefnum og aðgerðum á vegum
innlendra stofnanna og félagasamtaka og boðið upp á upplýsingar og tækifæri fyrir fólk að taka þátt í því sem er
að gerast í þeirra eigin samfélagi. Þessar samræður um allan heim munu vonandi leiða til aðgerða sem leysa vandann sem breytingar á
loftslagi eru.
Sjá kynningarmyndband hér: http://www.youtube.com/watch?v=PY-mboZkhD0