Aðalfundarboð Orkuveitu Húsavíkur ohf.
10.04.2018
Tilkynningar
AÐALFUNDARBOÐ.
Aðalfundur Orkuveitu Húsavíkur ohf. árið 2018, vegna starfsársins 2017, verður haldinn föstudaginn 13. apríl 2018 kl. 10.30 í Stjórnsýsluhúsi Norðurþings, Ketilsbraut 7-9 á Húsavík.
Dagskrá samkv. 14. grein samþykkta félagsins:
- Stjórn félagsins skal skýra hluthöfum frá hag félagsins og rekstri þess á liðu starfsári.
- Efnahagsreikningur og rekstrarreikningur félagsins fyrir liðið starfsár skulu lagðir fram ásamt athugasemdum endurskoðenda félagsins til samþykktar.
- Tekin skal ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað og tap félagsins á reikningsárinu.
- Kjör stjórnar.
- Kjör endurskoðanda.
- Ákvörðun skal tekin um greiðslur til stjórnarmanna fyrir störf þeirra á starfsárinu.
- Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin.
f.h. stjórnar OH
Gunnar Hrafn Gunnarsson
framkvæmdastjóri Orkuveitu Húsavíkur ohf.