Aðalfundur Húsavíkurstofu
22.01.2020
Tilkynningar
Aðalfundur Húsavíkurstofu verður haldinn þann 4. febrúar kl. 17:30 í sal Hvalasafnsins.
Nýir og eldri meðlimir sérstaklega velkomnir á fundinn. Einnig allir þeir sem hafa áhuga á uppbyggingu í verslun og ferðaþjónustu á svæðinu. Í lok fundar mun Björn H. Reynisson frá Markaðsstofu Norðurlands kynna nánar nýja samstarfið um Demantshringinn / Diamond Circle.
Dagskrá:
- Kosning fundarstjóra og ritara aðalfundar
- Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess s.l. starfsár.
- Ársreikningur kynntur og lagður fram til samþykktar.
- Kosning stjórnar félagsins.
- Kosning skoðunarmanna.
- Önnur mál.