Aðalfundur Orkuveitu Húsavíkur ohf.
25.04.2017
Tilkynningar
Aðalfundur Orkuveitu Húsavíkur ohf. árið 2017, vegna starfsársins 2016, verður haldinn þriðjudaginn 2. maí 2017 kl. 14:00 í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, Ketilsbraut 7-9 á Húsavík.
Dagskrá skv. 14. grein samþykkta félagsins:
- Stjórn félagsins skal skýra hluthöfum frá hag félagsins og rekstri þess á liðnu starfsári.
- Efnahagsreikningur og rekstrarreikningur félagsins fyrir liðið starfsár skulu lagðir fram ásamt athugasemdum endurskoðenda félagsins til samþykktar.
- Tekin skal ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu.
- Kjör stjórnar.
- Kjör endurskoðanda.
- Ákvörðun skal tekin um greiðslur til stjórnarmanna fyrir störf þeirra á starfsárinu.
- Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin.