Æskulýðs- og menningarnefnd Norðurþings auglýsir eftir umsóknum um styrki til lista- og menningarmála
19.02.2018
Tilkynningar
Æskulýðs- og menningarnefnd auglýsir eftir umsóknum
Styrkirnir eru veittir samkvæmt skipulagsskrá Lista- og menningarsjóðs Norðurþings og reglum um úthlutun úr sjóðnum.
Úthlutun úr sjóðnum fer fram tvisvar á ári. Skipulagsskrá Lista- og menningarsjóðs ásamt reglum um úthlutun úr sjóðnum má nálgast á heimasíðu Norðurþings.
Eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum
rafrænt eyðublað á heimasíðu Norðurþings eigi síðar en 9. mars n.k.
Kjartan Páll Þórarinsson, Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
kjartan@nordurthing.is