Fara í efni

Afsláttur af gatnagerðargjöldum fyrir valdar lóðir

Sveitarstjórn tók upp bókun frá 9. fundi framkvæmdanefndar Norðurþings og samþykkti samhljóða að veita 50% afslátt af gatnagerðargjöldum fyrir valdar lóðir þar sem útgjöld sveitarfélagsins vegna gatnagerðar eru minniháttar.

Þær lóðir sem um ræðir eru;
- Stakkholt 5 og 7
- Lyngbrekka 6, 8, 9 og 11
- Urðargerði 5
- Steinagerði 5
- Lyngholt 26 til 32
- Lyngholt 42 til 48
- Grundargarður 2

Umræddar lóðir eru á Húsavík.

Afsláttur einbýlishúsa miðast við að húsnæði verði fokhelt fyrir lok árs 2017.
Afsláttur fölbýlishúss miðast við að húsnæði verði fokhelt fyrir lok árs 2018.

Frekari upplýsingar veitir fjármálastjóri og staðgengill sveitarstjóra Norðurþings,
Gunnlaugur Aðalbjarnarson – gunnlaugur@nordurthing.is.