Fara í efni

Alcoa hættir við byggingu álvers á Bakka

Alcoa á Íslandi tilkynnti hagsmunaaðilum á Norðurlandi í dag að félagið væri hætt áformum um byggingu álvers á Bakka enda ljóst að ekki muni bjóðast nægileg orka á samkeppnishæfu verði til álsversins. Alcoa á Íslandi tilkynnti hagsmunaaðilum á Norðurlandi í dag að félagið væri hætt áformum um byggingu álvers á Bakka enda ljóst að ekki muni bjóðast nægileg orka á samkeppnishæfu verði til álsversins.

Þessi niðurstaða kemur í kjölfar sex ára undirbúningsvinnu við verkefnið, en af hálfu Alcoa hefur legið fyrir frá upphafi að ekki yrði ráðist í svo umfangsmikla fjárfestingu, sem álver er, nema tryggt væri að næg orka fengist til álversins á viðunandi verði til framtíðar. Í dag telur Landsvirkjun sig einungis geta tryggt Alcoa helming þeirrar orku sem Alcoa, Landsvirkjun og stjórnvöld gengu útfrá í upphafi að fengist til verkefnisins. Auk þess er afhendingartími þeirrar orku sem Alcoa býðst of langur til að af fjárfestingu af þessari stærðargráðu geti orðið.

Alcoa stendur því frammi fyrir allt öðrum veruleika en fyrir fimm árum þegar fyrirtækið hóf vinnu við verkefnið í samstarfi við stjórnvöld, sveitarfélög nyrðra og orkufyrirtæki. Eftir viðræður við stjórnendur Landsvirkjunar og fulltrúa stjórnvalda hefur Alcoa komist að þeirri niðurstöðu að ekki sé lengur unnt að réttlæta fjárfestingu af þeirri stærðargráðu sem bygging og rekstur álvers á Bakka er.

Alcoa hóf þátttöku í verkefninu með undirritun viljayfirlýsingar við ríkisstjórnina og Norðurþing á fyrri hluta árs 2006. Viljayfirlýsingar við Landsvirkjun/Þeistareyki og Landsnet voru gerðar í kjölfarið. Viljayfirlýsingin við Landsvirkjun rann út árið 2008 og ári síðar viljayfirlýsing Alcoa, Norðurþings og stjórnvalda. Beiðni Alcoa um framlengingu hennar var hafnað af ríkisstjórninni. Þrátt fyrir það ákvað Alcoa að halda áfram vinnu við sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum fyrir álver, orkuver og raflínur á svæðinu. Matsferlinu lauk í nóvember 2010. Um leið og Alcoa lýsir vonbrigðum yfir því að þær forsendur, sem lagt var upp með í verkefninu árið 2006, séu brostnar þakkar fyrirtækið Norðlendingum af heilum hug samstarfið og stuðninginn við verkefnið, segir í fréttatilkynningu.

(heimild: http://www.640.is/)