Fara í efni

Allir á völlinn!

Á morgun, þriðjudag verður tímamóta leikur hjá Völsungsstelpum. En eins og flestum er kunnugt hafa stelpurar okkar staðið sig frábærlega í sumar og  boðið upp á frábæra skemmtun fyrir okkur Húsvíkinga, fyrir það vil ég færa stelpunum bestu þakkir. Niðurstaða sumarsins er því með þeim hætti að stelpurnar eiga möguleika á því að spila meðal þeirra bestu á næsta leiktímabili. Ég vil því nota tækifærið og hvetja Húsvíkinga til að fjölmenna á völlinn á þennan síðasta og mikilvægasta leik sumarsins.  Baráttu kveðjur Bergur Elías Ágústsson Völsungur og sveitarstjóri.

Á morgun, þriðjudag verður tímamóta leikur hjá Völsungsstelpum. En eins og flestum er kunnugt hafa stelpurar okkar staðið sig frábærlega í sumar og  boðið upp á frábæra skemmtun fyrir okkur Húsvíkinga, fyrir það vil ég færa stelpunum bestu þakkir. Niðurstaða sumarsins er því með þeim hætti að stelpurnar eiga möguleika á því að spila meðal þeirra bestu á næsta leiktímabili. Ég vil því nota tækifærið og hvetja Húsvíkinga til að fjölmenna á völlinn á þennan síðasta og mikilvægasta leik sumarsins. 

Baráttu kveðjur

Bergur Elías Ágústsson

Völsungur og sveitarstjóri.