Alþingiskosningar 2021
Laugardaginn 25. september 2021 fara fram kosningar til Alþingis.
Hér fyrir neðan má finna upplýsingar um framkvæmd alþingiskosninga í Norðurþingi
Frá 13. til 24. september 2021 liggur kjörskrá vegna alþingiskosninganna frammi á skrifstofum Norðurþings á Húsavík, Kópaskeri og Raufarhöfn. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar úr kjörskrá á upplýsingavefnum www.kosning.is.
Athugasemdir við kjörskrá skulu berast sveitarstjórn Norðurþings.
Rétt til að kjósa á kjörfundi á kosningadaginn 25. september 2021 hafa allir 18 ára og eldri sem eru á kjörskrá.
Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki og framvísa á kjörstað.
Norðurþingi er skipt niður í 5 kjördeildir:
- Kjördeild I og II - Borgarhólsskóla Húsavík
Fyrir íbúa Húsavíkur og Reykjahverfis. Kjörfundur er opinn kl. 10:00-22:00. Inngangur að austanverðu, gengt Framhaldsskólanum. - Kjördeild III - Skúlagarði
Fyrir íbúa Kelduhverfis. Kjörfundur er opinn kl. 10:00-18:00. - Kjördeild IV - Skólahúsinu Kópaskeri.
Fyrir íbúa Kópaskers og Öxarfjarðar. Kjörfundur er opinn kl. 10:00-18:00. - Kjördeild V - Ráðhúsinu Raufarhöfn
Fyrir íbúa Raufarhafnar og nágrennis. Kjörfundur er opinn kl. 10:00-18:00.
Allar nánari upplýsingar um framkvæmd alþingiskosninganna fást hjá Norðurþingi í síma 464-6100 og á upplýsingavefnum www.kosning.is
Yfirkjörstjórn Norðurþings
Ágúst Sigurður Óskarsson
Berglind Ósk Ingólfsdóttir
Karl Hreiðarsson