Fara í efni

Ársreikningur Norðurþings fyrir árið 2010

Rekstrarniðurstaða samstæðu Norðurþings fyrir árið 2010 er jákvæð um 507 milljónir króna. Rekstrartekjur samstæðu sveitarfélagsins námu 2.314 milljónum króna og rekstrargjöld 2.527 milljónum króna.

Rekstrarniðurstaða samstæðu Norðurþings fyrir árið 2010 er jákvæð um 507 milljónir króna. Rekstrartekjur samstæðu sveitarfélagsins námu 2.314 milljónum króna og rekstrargjöld 2.527 milljónum króna.

Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld voru jákvæð um 872 milljónir króna.

Eignir samstæðunnar í árslok 2010 námu 6.664 milljónum króna og skuldir samtals 5.931 milljón króna að meðtöldum lífeyrisskuldbingingum.  Eignir umfram skuldir námu því  733 milljónum króna samanborið við 287 milljón krónum í árslok 2009.

Veltufé frá rekstri nam 122 milljónum króna.  Fjárfestingahreyfingar voru jákvæðar um 490 milljónir króna.  Heildar launagreiðslur og launatengdgjöld samstæðunnar námu 1.407 milljónum króna að meðtöldum breytingum á lífeyrisskuldbindingum.

Íbúafjöldi sveitarfélagsins Norðurþings er 2.926 í árslok 2010.

Á árinu 2010 seldi Orkuveita Húsavíkur ehf. 28,77% hlut í Þeistareykjum ehf.  Hluti söluandvirðis eignarhlutans skv. kaupsamningi er skuldabréf þar sem greiðsla er háð því að orkuvinnsla hefjist innan tuttugu og fjögurra ára frá undirritun kaupsamnings og nái vissu marki.  Bréfið er verðtryggt og ber fasta vexti en fjárhæð þess er um 621 milljón króna.  Í  samræmi við góðar reikningsskilavenjur, var hluti söluverðsins ekki tekjufærður og að sama skapi er skuldabréfið ekki fært til eignar í reikningsskilum sveitarfélagsins.

Meðfylgjandi er ársreikningur sveitarfélagsins Norðurþings sem tekinn var fyrir til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi þriðjudagskvöldið 17. maí 2011.

Ársreikningur 2010

Nánari upplýsingar veitir, Bergur Elísas Ágústsson, bæjarstjóri Norðurþings í síma 464-6100.