Fara í efni

Ársreikningur Norðurþings fyrir árið 2013

Rekstrarafkoma samstæðu Norðurþings Jákvæð Ársreikningur Norðurþings fyrir árið 2013 hefur verið lagður fyrir bæjarráð og er honum vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu 2013 námu 2.718 milljónum króna samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A og B hluta.  Rekstrargjöld sveitarfélagsins námu 2.599 milljónum króna.  Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A og B hluta var 68 milljón króna betri en fjárhagsáætlanir gerðu ráð fyrir en samstæðan skilaði um 51 milljón í rekstrarafgang.  Eigið fé samstæðu sveitarfélagsins í árslok nam 485 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi.  Veltufé frá rekstri samstæðunnar nam um 339 milljónum króna.  Handbært fé í árslok nam 597 milljónum króna.  Á árinu 2013 var gjaldfært hjá málaflokknum félagsþjónusta sérstakt framlag um 21 milljón króna til reksturs Dvalarheimilis aldraðra sf., sem ekki var gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun.  Á árinu 2013 ver einnig gjaldfært hjá málaflokknum hreinlætismál sérstakt framlag um 25 milljónir króna til reskstrar Sorpsamlags Þingeyinga ehf., sem ekki var gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun.  Þá var einnig gjaldfært hjá Aðalsjóði sérstakt framlag um 74 milljónir króna vegna rekstrar Þjónustumiðstöðvar sem ekki var gert ráð fyrir í áætlun.

Laun og launatengd gjöld á árinu námu alls 1.447 milljónum króna en starfsmannafjöldi hjá sveitarfélaginu nam 234 stöðugildum.  Íbúafjöldi sveitarfélagsins 1. desember 2013 var 2.826 og fækkaði um 37 frá fyrra ári.

Skuldahlutfall skv. reglum um fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga fór úr 184% árið 2012 í 179% árið 2013.  Skuldir samstæðu sveitarfélagsins lækkuðu um 234 milljónir milli ára.

Ársreikningur Norðurþings fyri árið 2013 er tilbúinn til endurskoðunar og afgreiðslu í bæjarstjórn.  Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins er betri en fjárhagsátælun gerði ráð ráð fyrir.

Nánari upplýsingar vetir Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri Norðurþings í síma 464-6100

Húsavík, 29. apríl 2014