Fara í efni

Áskorun á formann tómstunda- og æskulýðsnefndar

Á fundi tómstunda- og æskulýðsnefndar sem haldinn var í gær var samþykkt umsókn um styrk vegna framkvæmdar við Jökulsárhlaup 2011.

Á fundi tómstunda- og æskulýðsnefndar sem haldinn var í gær var samþykkt umsókn um styrk vegna framkvæmdar við Jökulsárhlaup 2011.

Jökulsárhlaupið er orðið eitt vinsælasta utanvegahlaup landsins og hefur því verið sinnt af miklum metnaði.

Við umfjöllun nefndarinnar kom fram áskorun á formann nefndarinnar, Hjálmar Boga Hafliðason, "að koma sér í form og taka þátt í hlaupinu" eins og það var orðað í fundargerð.  Nú er bara að bíða og sjá hvort formaðurinn taki þessari áskorun.