Fara í efni

AUGLÝSING (IX) um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta.

1. gr. Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 665 frá 10. júlí 2013 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2013/2014 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélagi:

Sveitarfélagið Norðurþing.

Ákvæði reglugerðar nr. 665 frá 10. júlí 2013 gilda um úthlutun byggðakvóta byggðarlaga Sveitarfélagsins Norðurþings með eftirfarandi viðauka/breytingum:

 

a)    Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr.  reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. september 2012 til 31. ágúst 2013.

b)   Ákvæði 2. mgr. 4. gr.  reglugerðarinnar breytist og verður: Afli af fiskiskipum sem landað er í sveitarfélagi af bátum sem ekki eru skráðir innan viðkomandi sveitarfélags á sama tíma, telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr.

c)    Ákvæði 1.  málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður:  Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan hlutaðeigandi byggðarlags, sé hins vegar ekki starfandi fiskvinnsla innan byggðarlagsins er skylt að landa aflanum til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2013 til 31. ágúst 2014.

 

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.