Fara í efni

Auglýsing um forsetakosningar laugardaginn 1. júní 2024

Frá 11. maí til og með 31. maí liggur kjörskrá vegna forsetakosninganna frammi á skrifstofu Norðurþings á Húsavík. Einnig er hægt að finna upplýsingar um hvar eigi að kjósa á https://island.is/v/forsetakosningar-2024/hvar-a-eg-ad-kjosa

Rétt til að kjósa á kjörfundi á kosningadaginn 1. júní 2024, hafa allir 18 ára og eldri sem eru á kjörskrá. Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki.

Norðurþingi er skipt niður í 5 kjördeildir, skv. eftirfarandi:

Kjördeild I og II – Borgarhólsskóla Húsavík
Fyrir íbúa Húsavíkur og Reykjahverfis. Kjörfundur er opinn kl. 10:00-22:00.
Inngangur að austanverðu, gengt Framhaldsskólanum og Íþróttahöllinni.

Kjördeild III – Skúlagarði
Fyrir íbúa Kelduhverfis. Kjörfundur er opinn kl. 10:00-18:00.

Kjördeild IV – Skólahúsinu Kópaskeri
Fyrir íbúa Kópaskers og Öxarfjarðar. Kjörfundur er opinn kl. 10:00-18:00.

Kjördeild V – Ráðhúsinu á Raufarhöfn
Fyrir íbúa Raufarhafnar og nágrennis. Kjörfundur er opinn kl. 10:00-18:00.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fer fram á skrifsstofum sýslumannsins á Húsavík að Útgarði 1, mánudaga til fimmtudaga kl. 9.00-15.00 en föstudaga kl. 9.00-14.00:

Greiða má atkvæði á eftirfarandi skrifstofum Norðurþings:

  • Raufarhöfn: Skrifstofu Norðurþings, Aðalbraut 23, virka daga 10:00-12:00, eða skv. samkomulagi.
  • Kópasker: Skrifstofu Norðurþings, Bakkagötu 10, miðvikudaga og föstudaga, kl. 10:00-12:00, eða skv. samkomulagi

Allar nánari upplýsingar um framkvæmd forsetakosninganna fást hjá Norðurþingi á netfangið kjorstjorn@nordurthing.is eða í síma 464-6100 og á upplýsingavefnum www.kosning.is.

Yfirkjörstjórn Norðurþings
Karl Hreiðarsson
Hermann Aðalgeirsson
Berglind Ósk Ingólfsdóttir