Auglýsing um lausar byggingarlóðir í Norðurþingi
18.01.2018
Tilkynningar
Auglýsing um lausar byggingarlóðir í Norðurþingi
Framkvæmdanefnd Norðurþings hefur ákveðið að bæta einbýlishúsalóðum að Hrísateigi 7-12 í Reykjahverfi á lista yfir lausar lóðir í Norðurþingi. Við Hrísateig eru þegar sex einbýlishús í grónu umhverfi um 10 km sunnan Húsavíkur. Gatan verður framlengd ef áhugi reynist fyrir lóðunum. Hver lóð er 900 m², heimilað nýtingarhlutfall 0,3 og þar gert ráð fyrir byggingum á einni hæð.
Listi yfir aðrar lausar byggingarlóðir á vegum Norðurþings er birtur á heimasíðu sveitarfélagsins, nordurthing.is. Nánari upplýsingar um lausar lóðir veitir undirritaður á sveitarstjórnarskrifstofu Norðurþings á Húsavík.
Gaukur Hjartarson
Skipulags- og byggingarfulltrúi