Auglýsing um rjúpnaveiðibann
31.10.2016
Tilkynningar
Rjúpnaveiðimenn – athugið!
Samkvæmt aðalskipulagi Norðurþings eru rjúpnaveiðar bannaðar á svæði sem afmarkast af fjallsafleggjara upp á topp Húsavíkurfjalls og þaðan um skriðubrúnir suður fyrir Botnsvatn, þaðan beina stefnu í Gvendarstein og um suðurmörk hverfisverndarsvæðis við Kaldbak (þ.e. um veg sunnan Kaldbakstjarna) til sjávar.
Framkvæmda- og þjónustufulltrúi
Norðurþings