Fara í efni

Auglýsing um tillögu að breytingu á aðalskipulagi Norðurþings 2010-2030

Samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar Norðurþings frá 15. maí 2012 og í samræmi við 1. mgr.  36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Norðurþings 2010-2030.

Samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar Norðurþings frá 15. maí 2012 og í samræmi við 1. mgr.  36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Norðurþings 2010-2030.

Breytingin felst í að syðsti hluti Hafnarstéttar verði skilgreindur sem blandað svæði fyrir hafnarstarfsemi og svæði fyrir verslun og þjónustu til samræmis við nyrðri hluta svæðisins.  Þannig stækkar svæði fyrir blandaða landnotkun V1/H4 um u.þ.b. 8.000 m² á kostnað hreins hafnarsvæðis H5.  Samhliða kynningu þessarar tillögu fer fram kynning á breytingu deiliskipulags miðhafnarsvæðis Húsavíkur sem m.a. gerir ráð fyrir ferðaþjónustengdri starfsemi innan breytingarsvæðis.  Tillaga að breytingunni er lögð fram með skýringarmyndum í mkv. 1:10.000 og greinargerð á A4 blaði.
Tillagan liggur frammi á bæjarskrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9 á Húsavík frá og með 25. maí 2012 til og með 6. júlí 2012.  Einnig er skipulagstillagan til kynningar á heimasíðu Norðurþings (http://www.nordurthing.is/is/thjonusta/skipulags-og-byggingarmal/skipulagsmal) og á Skipulagsstofnun.  Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna.  Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega til undirritaðs að Ketilsbraut 7-9, Húsavík eða á netfangið nordurthing@nordurthing.is eigi síðar en 6. júlí 2012.  Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests teljast samþykkja tillöguna.


Gaukur Hjartarson
Skipulags- og byggingarfulltrúi Norðurþings