Fara í efni

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2013/2014

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2013/2014 sbr. reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa nr. 665, 10. júlí 2013

Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 462/2014 í Stjórnartíðindum

 

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög:

Norðurþing (Húsavík, Kópasker og Raufarhöfn)

 

Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna hér.  Umsóknum þarf að fylgja samningur við vinnslu á eyðublaði sem er að finna hér. 

Vakin skal athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi.

 

Umsóknarfrestur er til og með 30. maí 2014.

 

Fiskistofa 16. maí 2014