Auglýst er eftir umsóknum í Afreks- og viðurkenningarsjóð
26.01.2023
Tilkynningar
Fjölskylduráð Norðurþings auglýsir eftir umsóknum um styrki í Afreks- og viðurkenningarsjóð Norðurþings vegna ársins 2022.
Styrkirnir eru veittir til einstaklinga, íþróttahópa, liða eða félaga.
Landsliðsverkefni og alþjóðleg mót eru meðal þeirra verkefni sem styrkt eru.
Tilgangur / markmið sjóðsins er að:
- styrkja og veita íþróttafélögum í sveitarfélaginu viðurkenningu fyrir góðan árangur, heiðarlega keppni og öflugt íþrótta-, félags- og æskulýðsstarf.
- styrkja og veita viðurkenningar til einstaks afreksfólks á sviði íþrótta, sem keppa fyrir hönd íþróttafélaga í Norðurþingi, til að auðvelda þeim að stunda æfingar í sinni grein og ná árangri.
Hér má sjá reglur Afreks- og viðurkenningarsjóðs
Hér má sækja um í gegnum rafrænt eyðublað
Umsóknarfrestur um styrki úr Afreks- og viðurkenningarsjóði er til 19. febrúar
Allar nánari upplýsingar veitir
Kjartan Páll Þórarinsson (kjartan@nordurthing.is)