Fara í efni

Barnalífeyrir vegna náms eða starfsþjálfunar

Vakin er athygli á kynningarbréfi frá Tryggingastofnun vegna barnalífeyris vegna náms/starfsþjálfunar og framlag vegna náms eða starfsþjálfunar.

 

Það er mikilvægt að koma þessu bréfi til flestra sem vinna með ungmennum 18-20 ára sem gætu átt rétt á greiðslum.

 

Barnalífeyri vegna náms eða starfsþjálfunar þarf að sækja um á hverri önn og á skólavottorði þarf að koma fram námsárangur á síðustu önn ásamt staðfestingu á fjölda eininga á næstu önn. Mikilvægt er að tilgreint sé hvort um hefðbundnar einingar eða Fein-einingar sé að ræða.

Mánaðarleg upphæð greiðslna á árinu 2016 er 29.469 kr.

Sótt er um á tr.is Mínar síður.