Fara í efni

Bergþór Bjarnason ráðinn fjármálastjóri Norðurþings

Bergþór Bjarnason hefur verið ráðinn í starf fjármálastjóra Norðurþings.

Bergþór er með BS gráðu í viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst og MLM gráðu í forystu og stjórnun frá sama skóla. Undanfarin 14 ár hefur Bergþór starfað hjá Landsbankanum þar af síðustu 11 ár sem útibússtjóri Landsbankans á Húsavík, Þórshöfn, Raufarhöfn og Kópaskeri. Þar áður starfaði Bergþór við hin ýmsu störf, flest tengd útgerð og sjávarútvegi. Bergþór hefur góða reynslu af rekstri og langa og farsæla reynslu af stjórnun.

Norðurþing býður Bergþór velkominn til starfa, en hann mun hefja störf þann 1. febrúar nk.