Fara í efni

Bók til landsmanna - Fjallkonan

Forsætisráðuneytið, í samvinnu við Forlagið, gefur út bók með þjóðhátíðarljóðum og greinum um fjallkonuna 17. júní 2024 sem verði gefin landsmönnum. Bókinni verður dreift um landið og geta landsmenn nálgast hana í bókasöfnum og sundlaugum.

Titill bókarinnar er Fjallkonan. Þú ert móðir vor kær, með vísan til ljóðs Þorsteins Erlingssonar.

Forsætisráðherra ritar formála, greinahöfundar eru; Goddur, Ragnheiður Kristjánsdóttir, Silja Aðalsteinsdóttir og Áslaug Sverrisdóttir.
Þýðingar á formál og útdrætti greina verða á pólsku og ensku.

Í Norðurþingi verða bækurnar ókeypis á eftirtöldum stöðum og hægt að sækja þær á opnunartíma:
Bækurnar verða einnig fáanlegar á hátíðarhöldunum 17. júní.

Húsavík:
Sundlaug
Bókasafn

Kópasker:
Bókasafn 

Raufarhöfn:
Sundlaug