Breyting á aðalskipulagi vegna jarðstrengs frá virkjanasvæði
Breytingin felst í að heimilt verði að leggja jarðstreng (66kV) í vegöxl Reykjaheiðarvegar. Jarðstrengurinn mun liggja eftir vegi frá Þeistareykjum í Þingeyjarsveit að Kópaskerslínu í Norðurþingi. Sá hluti sem fellur innan Norðurþings er um 1 km að lengd.
Breytingin er háð lögum um umhverfismat áætlana nr. 105/2006 og er tillaga að breytingunni ásamt umhverfisskýrslu því hér með auglýst sbr. 7. gr. laganna.
Skipulagsgögnin eru sett fram á einu blaði dags 28.2.2012 og samanstanda af greinargerð með forsendum og rökstuðningi, umhverfisskýrslu og uppdrætti í mkv. 1: 100:000.
Breytingartillagan og umhverfisskýrsla verða til sýnis í 6 vikur í Stjórnsýsluhúsi Norðurþings, Ketilsbraut 7-9, Húsavík og á Skipulagsstofnun frá og með mánudeginum 5. mars nk. til mánudagsins 16. apríl 2012. Tillagan er einnig til sýnis á heimasíðu Norðurþings www.nordurthing.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna og umhverfisskýrsluna til mánudagsins 16. apríl 2012.
Athugasemdir skal senda til Stjórnsýsluhúss Norðurþings, Ketilsbraut 7-9, 640 Húsavík eða í tölvupósti til gaukur@nordurthing.is.
Húsavík 29. febrúar 2012
Gaukur Hjartarson
Skipulagsfulltrúi Norðurþings.