COVID-19 - Tilkynning vegna sorphirðu
18.03.2020
Tilkynningar
Vegna COVID-19 faraldurs vill Íslenska gámafélagið koma eftirfarandi tilmælum á framfæri:
-
Almennt sorp þarf að vera í vel lokuðum pokum og ekki má yfirfylla tunnur.
-
Smitaðir einstaklingar þurfa sérstaklega að gæta þess að snýtibréf fari í vel lokuðum poka í Gráu tunnuna fyrir almennt sorp.
-
Umfram sorp sem kemst ekki í tunnur, þurfa íbúar að skila sjálfir á gámasvæðið.
-
Flokkun á endurvinnsluhráefni helst óbreytt enn sem komið er.
Þessi tilmæli eru til þess að koma í veg fyrir að starfsfólk okkar þurfi að snerta sorpið og til að draga úr smithættu.