Fara í efni

Dagmar Kristjánsdóttir ráðin í starf bókara hjá Norðurþingi

Dagmar Kristjánsdóttir hefur verið ráðin í starf bókara á fjármálasviði Norðurþings.

Dagmar hefur lokið námi í iðnrekstrarfræði við Háskólann á Akureyri. Undanfarin ár hefur hún unnið hjá PwC á Húsavík í bókhaldi en einnig hefur Dagmar starfað hjá Fjörfisk ehf/, Reykfisk ehf og Lánasýslu ríkisins. Dagmar hefur mikla reynslu af bókhaldi og skrifstofustörfum.

 Norðurþing býður Dagmar velkomna í starfsmannahópinn.