Fara í efni

Eimur - stofnfundur samstarfsverkefnis um bætta nýtingu orkuauðlinda og nýsköpun á Norðausturlandi

Stofnfundur samstarfsverkefnis um bætta nýtingu
orkuauðlinda og nýsköpun á Norðausturlandi verður
haldinn í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri, fimmtudaginn
9. júní næstkomandi.

Markmið verkefnisins er að vera vettvangur til að styðja við fjölnýtingu orkuauðlinda á svæðinu og stuðla þannig að aukinni sjálfbærni samfélaga og þróun fjölbreyttra atvinnutækifæra. Bakhjarlar verkefnisins eru Landsvirkjun, Norðurorka, Orkuveita Húsavíkur og Eyþing. Fundurinn stendur yfir kl. 13-15 og er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Skráning fer fram á www.eimur.is. 
Auglýsingu stofnfundar má sjá hér.