Félagsþjónusta Norðurþings auglýsir eftir öflugum og skapandi leiðtoga í starf forstöðumanns í félagsstarfi aldraðra
Forstöðumaður félagsstarfs aldraðra
Hreyfing, sköpun, fræðsla og lífsgleði
Félagsþjónusta Norðurþings auglýsir eftir öflugum og skapandi leiðtoga í starf forstöðumanns. Um er að ræða 50% starf á heilsársgrundvelli.
Um nýtt starf er að ræða sem krefst stefnumótunar og frumkvæðis. Félag eldri borgara hefur verið með öflugt félagsstaf og mun félagsstarfið á vegum Norðurþings vera í samstarfi við félagið.
Markmið félagsstarfsins er að fyrirbyggja og draga úr félagslegri einangrun með því að bjóða upp á opið félags- og tómstundastarf auk fræðslu, hreyfingu og námskeiða. Félagsstarfið skal stuðla að samskiptum og veita félagsskap. Meðal annars verður boðið upp á mat í hádeginu og kaffi.
Félagsstarfið er starfrækt í húsnæði eldri borgara í Hlyn á Húsavík.
Mikilvægt er að leggja góðan grunn að stefnumótun og skipulagi að öflugu félagsstarfi fyrir eldri borgara með velferð og vellíðan að leiðarljósi. Einnig að vinna að gæðaviðmiðum á félagsstarfi aldraðra á landsvísu. Nýr forstöðumaður mun taka þátt í þeirri vinnu ásamt öðrum hluteigandi aðilum.
Lykilorð félagsstarfs eru ; Hreyfing, sköpun, fræðsla og lífsgleði.
Helstu verkefni forstöðumanns eru:
- Stýra faglegu starfi félagsstarfs og félagsmiðstöð
- Umsjón með daglegum rekstri og innkaupum
- Skipulagning starfsins í samráði við eldri borgara
- Samskipti og samstarf
- Þátttaka í að móta stefnu og framtíðarsýn
Menntunar og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi æskileg
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Reynsla af starfi með öldruðum
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Áhugi á frístunda- og félagsstarfi
- Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi frístundar og félagsmiðstöðvar
- Góð íslenskukunnátta
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til 5. september 2019
Umsóknum skal skilað á tölvupósti á netfangið hrodny@nordurthing.is
Ferilskrá skal fylgja umsókn.
Allar frekari upplýsingar veitir Félagsmálastjóri Norðurþings, Hróðný Lund 464-6100