Fara í efni

Fasteignir til sölu í sveitarfélaginu Norðurþingi

Sveitarfélagið Norðurþing óskar eftir tilboðum í fasteignirnar að Hafnarbraut 2 „Gamla Kaupfélagshúsið“, „Stafnes“ (154522)  og „Sæblik“ (154524) á Raufarhöfn.  Einnig er óskað eftir tilboðum í eignina Höfða 1, (matshluti 102) sem er 66 fm. geymsla  á Húsavík.

Tilboðum skal skila á skrifstofu sveitarfélagsins fyrir  9. janúar 2012 til Sveins Hreinssonar, umsjónarmanns fasteigna Norðurþings. Tilboð verða opnuð 9. janúar 2012 í Stjórnsýsluhúsinu á Húsavík kl. 16:00.

Skilyrði eru sett fyrir sölu að eignanna að þær séu gerðar upp, að utan, innan þriggja ára í  samráði við byggingarfulltrúa sveitarfélagsins eða lögð fram áætlun þar að lútandi.

Sveinn Hreinsson, umsjónarmaður fasteigna Norðurþings. S 464-6100