Laus störf - Félagsmiðstöð Lundur - Kópasker - Raufarhöfn
Félagsstarf ungmenna - Lundur/Kópasker - Raufarhöfn
Auglýst er eftir starfsmanni til að sinna félagsstarfi ungmenna á aldursbilinu 10 – 16 ára. Starfsstöð getur verið í Lundi, Kópaskeri eða á Raufarhöfn.
Vinnutími er breytilegur en fer að mestu leyti fram eftir kl 17.00.
Ekki er um fast starfshlutfall að ræða og getur fjöldi vinnustunda á milli mánaða verið breytilegur eftir verkefnum.
Leitað er eftir jákvæðum, skapandi og áhugasömum starfsmönnum sem hafa áhuga á að byggja upp öflugt félagsstarf ungmenna.
Reynsla að starfi með börnum/ungmennum er kostur.
Krafa er gerð um hreint sakavottorð.
Viðkomandi má hefja störf þegar í stað.
Finna má rafrænt umsóknareyðublað hér.
Umsóknarfrestur er til 31.ágúst 2018.
Frekari upplýsingar veitir Kjartan Páll Þórarinsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi; kjartan@nordurthing.is / 464-6100