Félagsþjónusta Norðurþings hefur ráðið í starf rágjafa í Keldu, úrræði um snemmtæka íhlutun.
31.08.2020
Tilkynningar
Félagsþjónusta Norðurþings hefur ráðið Tinnu Ósk Óskarsdóttur í starf rágjafa í Keldu, úrræði um snemmtæka íhlutun. Tinna er með BA í uppeldis- og menntunarfræðum og er í námi í foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöf sem er mjög góð og þörf viðbót við það teymi sem fyrir er í Keldu. Tinna starfaði í Borgarhólsskóla síðast liðinn vetur og hefur áður starfað hjá félagsþjónustunni.
Við bjóðum Tinnu velkomna til starfa og óskum henni velfarnaðar í starfi.