Fara í efni

Ferðaþjónusta að Lundi í Öxarfirði

Spennandi tækifæri í rekstri Sveitarfélagið Norðurþing auglýsir til leigu aðstöðu fyrir ferðaþjónustu að Lundi í Öxarfirði í Norður - Þingeyjarsýslu. Í Lundi er mötuneyti og heimavist sem hefur um árabil verið leigt út til ferðaþjónustu frá vori og fram á haust. Á staðnum er sundlaug og íþróttahús. Þegar liggur fyrir nokkuð af bókunum vegna komandi sumars.

Spennandi tækifæri í rekstri

Sveitarfélagið Norðurþing auglýsir til leigu aðstöðu fyrir ferðaþjónustu að Lundi í Öxarfirði í Norður - Þingeyjarsýslu. Í Lundi er mötuneyti og heimavist sem hefur um árabil verið leigt út til ferðaþjónustu frá vori og fram á haust. Á staðnum er sundlaug og íþróttahús. Þegar liggur fyrir nokkuð af bókunum vegna komandi sumars.

Lundur er staðsettur í fallegu skógi vöxnu umhverfi og liggur við þjóðveg 85. Umferð til og frá Kópaskeri, Raufarhöfn og Þórshöfn liggur um staðinn. Í nágrenni Lundar eru vinsælir ferðamannastaðir s.s. Þjóðagarðurinn við Jökulsárgljúfur (6 km), Mývatn og Húsavík. Vaxandi sumarhúsabyggð er á svæðinu. Tilvalið tækifæri fyrir metnaðarfulla einstaklinga með áhuga á ferðaþjónustu.

Tilboð í leigu og áform um rekstur óskast send á skrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9, 640 Húsavík, eða á elisabet@nordurthing.is, fyrir 29. febrúar 2008. Einnig fást nánari upplýsingar hjá Elísabetu, aðstoðarmanni sveitarstjóra, í síma 464-6125.