Fara í efni

Fjölskylduhátíð í Íþróttahöllinni á Húsavík

Laugardaginn 15. mars verður haldin fjölskylduhátíð í Íþróttahöllinni á Húsavík.  Dagskráin er að venju fjölbreytt og hefst kl. 14:00 með stórleik í handbolta.  Þar mun karlaklúbburinn SÓFÍA skora á annars vegar lið meistaraflokks Völsungs og hins vegar stjörnulið Bergs Elíasar Ágústssonar sveitastjóra Norðurþings.  Kynnir verður Ingvar Björn Guðlaugsson  

Í hálfleik verður boðið upp á  fimleikasýningu , Karatesýningu  og er fólki boðið að reyna sig í ýmsum þrautum , hver hittir í körfuna ?
Kaffisala á vegum meistarflokks kvenna í Knattspyrnu.

Að leik loknum verður gestum og gangandi boðið upp á að prófa klifurvegginn undir dyggri leiðsögn reyndra klifurmanna og reyna sig í ýmsum þrautum á vegum Töff-sport.

Miðaverð er kr. 500, frítt fyrir 6 ára og yngri.  Allur ágóðinn fer upp í kaup á fjölnota sviði í íþróttahöllina.

Mætum öll og eigum skemmtilega stund í Höllinni !