Fara í efni

Fögnum sumri saman í Safnahúsinu

Á sumardaginn fyrsta verður margt um að vera í Safnahúsinu. Opnuð verður sýningin "Lömbin leika sér", sýning barna á deildunum Vilpu og Fossi á Leikskólanum Grænuvöllum.

Börnin eru fædd 2013 og 2014 þannig að með sanni má segja að þarna séu ungir listamenn á ferð.Nemar úr tónlistarskóla Húsavíkur leika fyrir gesti í Sjóminjasafninu . Einnig gefst gestum kostur á að spreyta sig í glænýjum fjölskylduratleik. 
"Lömbin leika sér verður opnuð klukkan 11:00.
Nemendur Tónlistarskóla Húsavíkur spila klukkan 11:30.
Frítt inn á allar sýningar í tilefni dagsins.
Opið 11-14