Fara í efni

Foreldrafræðsla í skólum vorið 2009

Foreldrafræðsla verður haldin í eftirfarandi grunnskólum í marsmánuði. Um er að ræða tvo fyrirlestra í hverjum skóla ásamt umræðum. Sigríður Jónsdóttir yfirhjúkrunarfræðingu heilsugæslu FÞ og Freydís Jóna Freysteinsdóttir félagsmálastjóri FN munu fjalla um Samskipti barna og foreldra.  Auk þess munu þau Jóhann Rúnar Pálsson æskulýðsfulltrúi Norðurþings, Guðlaug Gísladóttir æskulýðsfulltrúi Þingeyjarsveitar og Halldóra Gunnarsdóttir æskulýðs- og menningarfulltrúi Langanesbyggðar fjalla um Tómstundir barna. Nánari upplýsingar um staðsetningu og dagsetningar foreldrafræðslunnar má sjá hér að neðan:

Foreldrafræðsla verður haldin í eftirfarandi grunnskólum í marsmánuði.
Um er að ræða tvo fyrirlestra í hverjum skóla ásamt umræðum.

Sigríður Jónsdóttir yfirhjúkrunarfræðingu heilsugæslu FÞ og Freydís Jóna Freysteinsdóttir félagsmálastjóri FN munu fjalla um Samskipti barna og foreldra.  Auk þess munu þau Jóhann Rúnar Pálsson æskulýðsfulltrúi Norðurþings, Guðlaug Gísladóttir æskulýðsfulltrúi Þingeyjarsveitar og Halldóra Gunnarsdóttir æskulýðs- og menningarfulltrúi Langanesbyggðar fjalla um Tómstundir barna.

Nánari upplýsingar um staðsetningu og dagsetningar foreldrafræðslunnar má sjá hér að neðan:

Borgarhólsskóli 2. mars kl. 20-22 Litlulaugaskóli 4. mars kl. 20-22
Stórutjarnarskóli 9. mars kl. 20-22 Hafralækjarskóli 11. mars kl. 20-22
Reykjahlíðarskóli 12. mars kl. 20-22 Kópaskersskóli 16. mars kl. 16-18
Öxarfjarðarskóli 16. mars kl. 20-22 Grunnsk. Bakkafirði 17. mars kl. 16-18
Grunnsk. Þórshöfn 17. mars kl. 20-22 Grunnsk. Raufarhöfn 18. mars kl. 16-18

Gert er ráð fyrir að foreldrar barna í Svalbarðsskóla mæti í Grunnskólann á Þórshöfn eða á Raufarhöfn.