Forstöðumaður Húsavíkurstofu
13.01.2020
Tilkynningar
Húsavíkurstofa auglýsir eftir forstöðumanni til starfa sem fyrst. Starfshlutfall eftir samkomulagi en aldrei minna en 70%. Hlutverk forstöðumanns er að efla markaðssetningu á svæðinu, taka þátt í þróun og uppbyggingu á starfinu og umsjón með upplýsingamiðlun til ferðamanna.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
- Ábyrgð á markaðs- og kynningarstarfi Húsvíkurstofu
- Daglegur rekstur
- Markaðssetning á svæðinu og gerð markaðsáætlunar
- Útgáfa kynningarefnis og birting auglýsinga
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun eða reynsla sem nýtist í starfi
- Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Sölutækni, góð almenn tölvukunnátta og hæfni í mannlegum samskiptum
Kunnátta í hönnunar- og myndvinnsluforritum er kostur en ekki skilyrði.
Umókn ásamt ferilskrá berist á stjórnarformann Húsavíkurstofu á netfangið info@visithusavik.is
Umsóknarfrestur er til 26. janúar 2020