Forstöðumaður í Vík íbúðakjarna
11.08.2022
Tilkynningar
Huld Aðalbjarnardóttir hefur verið ráðinn sem forstöðumaður í Vík íbúðarkjarna, hún hóf störf 1. ágúst sl. Huld hefur víðtæka reynslu á sviði fræðslumála og stjórnunnar. Huld hefur meðal annars starfað sem skólastjóri Öxarfjarðarskóla, verið fræðslu- og menningarfulltrúi hjá Norðurþingi og starfað sem skrifstofu- og fjármálastjóri Skrifstofu stéttarfélaganna á Húsavík.
Við bjóðum Huld innilega velkomna til starfa.