Fara í efni

Frá orlofsnefnd húsmæðra í N-Þingeyjarsýslu

Fyrirhuguð er haustferð til höfuðborgar Póllands, Varsjá 6. - 10. október.  Sérhver kona, sem veitir eða hefur veitt heimili forstöðu, án launagreiðslna fyrir það starf, á rétt á að sækja um orlof.  

Fyrirhuguð er haustferð til höfuðborgar Póllands, Varsjá 6. - 10. október.  Sérhver kona, sem veitir eða hefur veitt heimili forstöðu, án launagreiðslna fyrir það starf, á rétt á að sækja um orlof.

 

Áætlað verð: 85.200- miðað við 2 í herbergi með morgunmat,(eins manns herbergi kostar aukalega 19.700-). Innifalið er: beint flug til og frá Akureyri, flugvallarskattar, akstur til og frá flugvelli og íslensk fararstjórn. Gisting á Holiday INN****, 4 nætur.

Athugið: Verð miðast við 20 manna hóp og lýkur skráningu 31. maí. Þar sem um takmarkað sætaframboð er að ræða er konum bent á að skrá sig tímanlega.

Frekari upplýsingar og bókanir hjá;
Vigdísi Sigvarðardóttur s: 465-2400 og
Ástu Laufeyju Þórarinsdóttur s: 468-1288.