Fara í efni

Frábær aðsókn í sundlaugar sveitarfélagsins í sumar

Frábær aðsókn hefur verið í sundlaugar sveitarfélagsins það sem af er sumri. 
Veðrið hefur leikið við okkur síðustu vikur og hafa heimamenn og ferðamenn, bæði íslenskir og erlendir,  verið duglegir að nýta sér sundlaugarnar á góðviðrisdögum.

Met yfir fjölda gesta í júlí voru slegin bæði á Húsavík og  í Lundi.
Í Lund komu yfir 3000 gestir og á Húsavík komu 11.454 gestir sem er met frá upphafi talninga.
Í sundlauginni á Raufarhöfn var gestafjöldi á pari við síðasta sumar.

Flestir eru því sammála að sund sé góð leið til að rækta líkama og sál og því er ánægjulegt hvað sundlaugarnar eru vel sóttar.