Fara í efni

Framboð til bæjarstjórnar Norðurþings

Sveitarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 31. maí 2014.  Frestur til að skila framboðslistum er til kl. 12:00 á hádegi laugardaginn 10. maí 2014.

Framboðum, ásamt nauðsynlegum fylgigögnum, skal skila á skrifstofu Norðurþings á Húsavík fyrir þann tíma eða á fund yfirkjörstjórnar Norðurþings, sem haldinn verður kl. 11:00 laugardaginn 10. maí 2014.  Fundurinn verður haldinn á skrifstofu Norðurþings á Húsavík (suður inngangur).

Undirbúningur, framkvæmd og framboð til sveitarstjórnarkosninga fer eftir lögum um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998.

Allar nánari upplýsingar um framboð og kosningar til sveitarstjórna má nálgast á upplýsingavefnum www.kosning.is, á skrifstofum Norðurþings og hjá yfirkjörstjórn Norðurþings.

 

Yfirkjörstjórn Norðurþings

Ágúst Sigurður Óskarsson, formaður
Hanna Ásgeirsdóttir
Höskuldur Skúli Hallgrímsson