Fara í efni

Frétt á vef Alcoa Fjarðaáls 4. júlí 2008

Alcoa og Landsvirkjun taka upp viðræður um orkukaup Alcoa og Landsvirkjun munu á næstunni taka upp formlegar viðræður um orkukaup vegna álvers á Bakka. Stefnt er að því að viðræðunum ljúki fyrir árslok 2009. Þetta er meðal þess sem kveðið er á um í endurnýjaðri viljayfirlýsingu fyrirtækjanna sem Bernt Reitan, aðstoðarforstjóri Alcoa og Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, undirrituðu í síðustu viku.  

Alcoa og Landsvirkjun taka upp viðræður um orkukaup

Alcoa og Landsvirkjun munu á næstunni taka upp formlegar viðræður um orkukaup vegna álvers á Bakka. Stefnt er að því að viðræðunum ljúki fyrir árslok 2009. Þetta er meðal þess sem kveðið er á um í endurnýjaðri viljayfirlýsingu fyrirtækjanna sem Bernt Reitan, aðstoðarforstjóri Alcoa og Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, undirrituðu í síðustu viku.

 

Landsvirkjun og Þeistareykir ehf. munu fram til ársloka 2009 bora samtals tíu tilraunaborholur á háhitasvæðunum í Þingeyjarsýslu til að kanna orkugetu svæðanna. Alcoa mun taka þátt í kostnaði við tilraunaboranirnar, samkvæmt nánara samkomulagi. Þær áætlanir sem unnið er eftir gera ráð fyrir að álverið noti 400 MW af raforku. Komi í ljós að meiri raforka verði til reiðu munu aðilar ræða möguleika á að hún verði nýtt fyrir álver á Bakka