Fara í efni

Fréttatilkynning

  Norðurþing mótar framtíðarsýn 28.4.2008 Norðurþing hefur ákveðið að vinna nýtt aðalskipulag fyrir sveitarfélagið. Búsetuþróun á svæðinu, nýting og verndun náttúruauðlinda og áform um álver kalla á að Norðurþing móti sér framtíðarsýn og setji niður stefnu um byggðaþróun og landnotkun. Í aðalskipulagsvinnunni verður lögð sérstök áhersla á að marka stefnu um miðbæ Húsavíkur þannig að uppbyggingu hans verði með stýrt í átt að skýrri heildarsýn á þennan kjarna sveitarfélagsins. Einnig verður lögð áhersla á greiningu og stefnumörkun um landslag, í ljósi fjölbreytni þess, verðmætis og þýðingar fyrir búsetuskilyrði og ferðaþjónustu í Norðurþingi.

 

Norðurþing mótar framtíðarsýn

28.4.2008

Norðurþing hefur ákveðið að vinna nýtt aðalskipulag fyrir sveitarfélagið. Búsetuþróun á svæðinu, nýting og verndun náttúruauðlinda og áform um álver kalla á að Norðurþing móti sér framtíðarsýn og setji niður stefnu um byggðaþróun og landnotkun. Í aðalskipulagsvinnunni verður lögð sérstök áhersla á að marka stefnu um miðbæ Húsavíkur þannig að uppbyggingu hans verði með stýrt í átt að skýrri heildarsýn á þennan kjarna sveitarfélagsins. Einnig verður lögð áhersla á greiningu og stefnumörkun um landslag, í ljósi fjölbreytni þess, verðmætis og þýðingar fyrir búsetuskilyrði og ferðaþjónustu í Norðurþingi.

„Í þessari vinnu viljum við skerpa einkenni og ímynd Norðurþings og leita leiða til að  nýta betur þau tækifæri sem hér felast í náttúru og samfélagi. Við sjáum þessa stefnumörkun sem mikilvægan þátt til að  efla sveitarfélagið, ekki síst í atvinnumálum", segir Bergur Elías Ágústsson sveitarstjóri Norðurþings. 

Aðalskipulag er lykilþáttur í markvissri þróun hvers sveitarfélags og sveitarstjórnarmenn gera sér æ betur grein fyrir mikilvægi þess.  Ennfremur er vaxandi áhuga og skilningur íbúa og fyrirtækja á skipulagsmálum og æ oftar kallað eftir skýrri stefnu um framtíðarþróun sveitarfélags.

Norðurþing hefur samið við ráðgjafarfyrirtækið Alta um gerð aðalskipulagsins og væntir mikils af því samstarfi, þar sem Alta hefur m.a. sérhæft sig í stefnumörkun í aðalskipulagi. Vinna við aðalskipulagið er þegar hafin en gert er ráð fyrir því að henni ljúki í lok árs 2009.