Fara í efni

FRÉTTATILKYNNING

Landsvirkjun kaupir hlut Orkuveitu Húsavíkur í Þeistareykjum Landsvirkjun og Orkuveita Húsvíkur ehf. hafa náð samkomulagi um kaup Landsvirkjunar á 28,771% hlut Orkuveitu Húsavíkur ehf.  í hlutafélaginu Þeistareykjum ehf. Eftir kaupin á Landsvirkjun tæplega 93% hlut í félaginu en aðrir hluthafar eru Orkuveita Húsavíkur (3,2%) og Þingeyjarsveit (4,0% rúm). Fyrir hlutinn eru greiddar tæpar 14 milljónir bandaríkjadollara. Greitt er í áföngum þar til orkuvinnsla hefst á umráðasvæði Þeistareykja ehf.

Landsvirkjun kaupir hlut Orkuveitu Húsavíkur í Þeistareykjum

Landsvirkjun og Orkuveita Húsvíkur ehf. hafa náð samkomulagi um kaup Landsvirkjunar á 28,771% hlut Orkuveitu Húsavíkur ehf.  í hlutafélaginu Þeistareykjum ehf.

Eftir kaupin á Landsvirkjun tæplega 93% hlut í félaginu en aðrir hluthafar eru Orkuveita Húsavíkur (3,2%) og Þingeyjarsveit (4,0% rúm).

Fyrir hlutinn eru greiddar tæpar 14 milljónir bandaríkjadollara. Greitt er í áföngum þar til orkuvinnsla hefst á umráðasvæði Þeistareykja ehf.

Þeistareykir ehf. hafa frá árinu 2001 staðið að rannsóknum á möguleikum jarðhitasvæðisins að Þeistareykjum til jarðhitanýtingar. Hefur félagið fjárfest verulega í rannsóknum og öðrum verkefnum því tengdu. Boraðar hafa verið sex djúpar rannsóknarholur frá þremur borteigum á austanverðu svæðinu með góðum árangri, en samtals afkasta holurnar gufu sem jafngildir um 45 MW raforkuframleiðslu. Vísbendingar eru um að þar sé veruleg framleiðslugeta til viðbótar enda er jarðhitasvæðið á Þeistareykjum talið vera eitt af stærri jarðhitakerfum Íslands.

Háhitasvæðin á Norðausturlandi gegna lykilhlutverki í frekari uppbyggingu raforkuvinnslu á Íslandi. Orkuveita Húsavíkur ehf. hefur með þátttöku sinni í Þeistareykjum ehf. gegnt mikilvægu hlutverki við undirbúning orkuvinnslu á svæðinu og mun sem minni hluthafi halda þeirri uppbyggingu áfram. Þessi kaup gera Landsvirkjun enn betur í stakk búna að vinna að frekari uppbyggingu á þessu svæði í tengslum við aðra orkukosti fyrirtækisins.

Samhliða kaupunum hafa Norðurþing og Landsvirkjun gert með sér samstafssamning um nýtingu raforku á umráðvæði Þeistareykja ehf. Eru aðilar sammála um að stuðlað verði að því svo sem kostur er að áhugasamir orkukaupendur hefji orkufreka starfsemi í Þingeyjarsýslum og orkukaup frá Þeistareykjum ehf. og Landsvirkjun eftir atvikum.

 

Frekari upplýsingar veita Bergur Elías Ágústsson stjórnarformaður Orkuveitu Húsavíkur í síma 464-6100 og Ragna Sara Jónsdóttir yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar í síma 515-9000 eða 849-2122.

 

Reykjavík, 29. september 2010