Fara í efni

Fréttatilkynning frá Alcoa og Norðurþingi, 17. apríl 2007.

Ákveðið að halda áfram hagkvæmniathugun vegna álvers á Bakka. Aðilar að viljayfirlýsingu vegna hugsanlegs álvers á Bakka við Húsavík, þ.e. Alcoa, Norðurþing og Iðnaðarráðuneytið, hafa ákveðið að halda áfram hagkvæmniathugun og hefja vinnu við þriðja áfanga í samstarfi við Landsvirkjun og Landsnet. Sú framtíðarsýn að byggja álver sem nýtir endurnýjanlega orku frá jarðvarma og þar með góðan vinnustað með öruggum störfum til lengri tíma á Norðurlandi, hvetur aðila til að kanna til fulls þá möguleika sem þetta einstaka tækifæri býður upp á. Nánari upplýsingar veitir Bergur Elías Ágústsson 464-6100

Ákveðið að halda áfram hagkvæmniathugun vegna álvers á Bakka.

Aðilar að viljayfirlýsingu vegna hugsanlegs álvers á Bakka við Húsavík, þ.e. Alcoa, Norðurþing og Iðnaðarráðuneytið, hafa ákveðið að halda áfram hagkvæmniathugun og hefja vinnu við þriðja áfanga í samstarfi við Landsvirkjun og Landsnet.

Sú framtíðarsýn að byggja álver sem nýtir endurnýjanlega orku frá jarðvarma og þar með góðan vinnustað með öruggum störfum til lengri tíma á Norðurlandi, hvetur aðila til að kanna til fulls þá möguleika sem þetta einstaka tækifæri býður upp á.

Nánari upplýsingar veitir Bergur Elías Ágústsson 464-6100